Söfnun til stuðnings Geðhjálp, BUGL og Forma 2. október 2007 12:00 MYND/Stefán
Kiwanis-hreyfingin á Íslandi efnir til fjögurra daga landssöfnunar í vikunni til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra. Söfnunin hefst á fimmtudag og stendur til og með sunnudeginum 7. október og verður kjörorð hennar Lykill að lífi. Sparisjóðirnir á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus eru bakhjarlar verkefnisins eftir því sem segir í tilkynningu frá Kiwanishreyfingunni.Söfnunin er haldin í tengslum við alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn 10. október og rennur ágóðinn til Geðhjálpar, BUGL og Forma. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslunarmiðstöðvar og aðra fjölfarna staði auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning.Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili söfnunarinnar og má leggja málefninu lið með því að fara inn á heimabanka sparisjóðanna og millifæra. Hægt er að leggja inn á reikning söfnunarinnar; 1100-26-55000, kennitala 640173-0179. K-lykillinn verður ennfremur til sölu í öllum verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís dagana 4.-7. október.Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur í yfir 30 ár ár staðið fyrir landssöfnun þriðja hvert ár með sölu á K-lyklinum. Ágóði af landssöfnununum hefur runnið til fjölda verkefna til hjálpar geðsjúkum. Að þessu sinni er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál.Geðhjálp mun við ráðstöfun síns hluta söfnunarfjárins beina sjónum sérstaklega að ungu fólki á aldrinum 12-25 ára sem á við geðraskanir að etja. Þá hyggst BUGL nýta sinn hluta söfnunarfjárins til verkefna sem gera legudeildarsjúklingum kleift að fá þjálfun og afþreyingu utan deildarinnar.Forma mun enn fremur nýta styrkinn til að efla ráðgjafastarfsemi sína um land allt svo átröskunarsjúklingar eigi auðveldara með að leita sér hjálpar. Einnig verður komið á fót skipulegri forvarnafræðslu í 8. bekk grunnskóla og 1. bekk framhaldsskóla til að sporna við fjölgun átröskunarsjúklinga.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Sjá meira