Aðgerðaáætlun gegn manneklu á leikskólum 21. september 2007 16:42 Leikskólanefnd bæjarins kynnti aðgerðaáætlunina í dag. MYND/Stöð 2
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að veita tveimur leikskólum aukið fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði í tilraunaskyni til þess að auka stöðugleika í starfsmannahaldi leikskólans og laða starfsfólk að leikskólum. Þetta er meðal tillagna sem finna má í nýrri aðgerðaáætlun sem leikskólanefnd bæjarins lagði til. Eins og kunnugt er hafa bæjaryfirvöld í Kópavogi glímt við manneklu á leikskólum og var því ákveðið að reyna að ráða bót á vandanum. Með aðgerðaáætluninni fá starfsmenn leikskóla aukin tækifæri til náms í leikskólafræðum og aukið faglegt öryggi í starfi og þá verður leikskólastjórnendum gert kleift að sækja stjórnunarnám sem er sérsniðið að þörfum þeirra. Enn fremur á að bæta vinnuaðstöðu og námskeið sem miða m.a. að því að draga úr streitu. Enn fremur er gert ráð fyrir kjarabótum eins og auknum greiðslum vegna kostnaðar í starfi og námsstyrkir. Þá verður erlendum starfsmönnum boðið íslenskunámskeið á vegum bæjarins. Fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ að til viðbótar hafi verið samþykkt að greiða viðbótarlaun til leikskólakennara vegna aukins álags. Enn fremur hóf Kópavogsbær heimgreiðslur til foreldra barna undir tveggja ára aldri í nóvember í fyrra. Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að fella niður aldursmörkin og framlengja heimgreiðslur til þess tíma að börn fá inni á leikskóla.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira