Innlent

Nýir eigendur að næstelsta hlutafélagi landsins

Hér má sjá nýja eigendur og fulltrúa fyrri eigenda. Frá vinstri til hægri: Þorsteinn Þorgeirsson, Pétur Már Finnsson, Jónas Jónasson, Ástgeir Finnsson, Hilmir Hilmisson og Valgeir Hallvarðsson.
Hér má sjá nýja eigendur og fulltrúa fyrri eigenda. Frá vinstri til hægri: Þorsteinn Þorgeirsson, Pétur Már Finnsson, Jónas Jónasson, Ástgeir Finnsson, Hilmir Hilmisson og Valgeir Hallvarðsson.

Næstelsta hlutafélag landsins, Slippfélagið í Reykjavík, skipti um eigendur í dag þegar bræðurnir Pétur Már og Ástgeir Finnsson keyptu félagið. Slippfélagið, sem er málningarverksmiðja fyrir húsa- og skipamálningu, var stofnuð fyrir 105 árum eftir því sem segir í tilkynningu frá aðstandendum þess. Þar segir einnig að í 105 ára sögu félagsins hafi margir af þekktustu framámönnum í íslensku viðskiptalífi komið við sögu þess, þar á meðal Tryggvi Gunnarsson bankastjóri og Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×