Saka borgaryfirvöld um yfirgang 21. september 2007 15:42 MYND/Doja
Íbúar við Ánanaust í Reykjavík segja að borgaryfirvöld hafi virt þá að vettugi með því að heimila landfyllingu í fjörunni fyrir framan hús þeirra. Um er að ræða jarðveg sem fellur til vegna framkvæmda við tónlistar- og ráðstefnuhús við Austurhöfnina. Þeir óttast verulegar raskanir á nánasta umhverfi og að jarðvegurinn sé mengaður. „Borgaryfirvöld hafa gengið gróflega framhjá okkur," sagði Eiríkur Arnarsson, íbúi við Ánanaust, í samtali við Vísi. „Það hefur ekkert samráð verið haft við okkur og það á greinilega að ýta þessu í gegn án þess að tala við íbúa." Um töluvert magn er að ræða og reiknast Eiríki þetta séu um 40 þúsund vörubílafarmar. Gert er ráð fyrir landfyllingu á svæðinu samkvæmt aðalskipulagi. Íbúarnir benda á að framkvæmdirnar nú séu mun fyrr á ferðinni og ekki í fullu samræmi við skipulag. Hafa þeir ennfremur óskað eftir umhverfismati. Þá óttast íbúar við Ánanaust að jarðvegurinn sé mengaður og telja þeir einboðið að framkvæmdirnar á svæðinu muni valda miklum röskunum. „Þetta er fokgengt efni sem mun væntanlega fjúka yfir húsin okkar. Þá liggur ekki fyrir í hvað þeir ætla að nota svæðið," sagði Eiríkur. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, býr að Vesturgötu 73. Í samtali við Vísi sagðist hann taka undir mótmæli íbúanna enda sé hann byltingarmaður að fornu fari.Lýstu yfir vanþóknun á vinnubrögðum borgarinnarUmdeild landfylling. Einar Arnarsson telur að hún muni líta svona út að loknum framkvæmdum.MYND/Einar/Google EarthÍbúar sendu borgarráði bréf í lok síðasta júlímánaðar og óskuðu eftir skýringum frá borgaryfirvöldum. Í svari Ólafs Bjarnasonar, aðstoðarsviðsstjóra framkvæmdasviðs, er vísað í fyrirliggjandi aðalskipulag. Þá kemur fram að hugmyndir séu uppi um að nýta svæðið undir hverfisbækistöð.Á fundi húsfélagsins Vesturgötu 69-73 sem haldinn var 11. september var áformum borgarinnar harðlega mótmælt. Lýst er yfir vanþóknun á vinnubrögðum borgarinnar og þeirri staðreynd að íbúar hafi ekki verið hafði með í ráðum.Óskar Bergsson, formaður framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Vísi landfyllinguna vera í samræmi við aðalskipulag. Nú þegar væri búið að gefa út framkvæmdarleyfi og því yrði ekki breytt. Þá segir hann að ekki verði notast við mengaðan jarðveg í landfyllinguna. „Hins vegar er sjálfsagt að koma til móts við íbúa og takmarka ónæði af völdum framkvæmdanna."Þá segir Óskar ekki þörf á mati á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdanna. „Þetta er þriggja hektara landfylling. Samkvæmt lögum þá ber okkur aðeins tilkynna um svona landfyllingu ef hún er meiri en 5 hektarar."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira