Siv skipar nefnd um heildarendurskoðun laga um málefni aldraðra 13. mars 2007 12:18
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd til að annast heildarendurskoðun á lögum um málefni aldraðra.. Skipun nefndarinnar er í samræmi við stefnumótun ráðherra um uppbyggingu öldrunarþjónustunnarog í samræmi við ábendingar hagsmunaaðila, svo sem Landssambands eldri borgara um að eðlilegt sé að fram fari heildarendurskoðun á lögunum, að því er segir í fréttatilkynningu frá ráðherra. Í skipunarbréfi nefndarinnar er vísað til þess að á síðustu árum hafi komið fram ákveðnar kröfur um heildarendurskoðun laga um málefni aldraðra. Meðal annars hafi verið fundið að því að í lögunum sé of mikil áhersla lögð á stofnanaþjónustu við aldraða, þau endurspegli ekki nógu vel markmiðið um að styðja aldraða sem lengst til sjálfstæðrar búsetu og enn fremur að ekki sé nógu skýrt kveðið á um ábyrgð og verkaskiptingu varðandi ýmis verkefni innan málaflokksins. Einnig hafi verið haldið fram því sjónarmiði að sérstök lög um málefni aldraðra séu óþörf og að einungis eigi að fjalla um málaflokkinn í almennum lögum. Nefndinni er falið að takast á við verkefni sitt með fyrrnefnd atriði að leiðarljósi. Nefndin er þannig skipuð: Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, formaður, Vilborg Ingólfsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Vilborg Þ. Hauksdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, Jón Snædal, öldrunarlæknir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, Matthías Halldórsson, landlæknir, Margrét Margeirsdóttir, fulltrúi Landssambands eldri borgara, Kristbjörg Stephensen, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hallveig Thordarson, fulltrúi Tryggingastofnunar ríkisins. Starfsmaður nefndarinnar er Margrét Erlendsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum sínum til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra eigi síðar en 1. desember 2007.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira