Ríkisstjórnin skipar Vestfjarðanefnd 13. mars 2007 11:30
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að skipa nefnd til að vinna með Ísfirðingum að hugmyndum þeirra til minnka samdrátt í atvinnumálum vestra. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir vanda Vestfirðinga m.a. felast í því að Vestfirðingar hafi misst af uppganginum sem tengist stóriðjunni og að aflaheimildir hafi horfið frá svæðinu. Ísfirðingar hafa kallað eftir aðgerðum að hálfu stjórnvalda vegna mikils samdráttar í atvinnumálum á undanförnum árum. Umræðan vestra varð enn harðari eftir að Marel tilkynnti að fyrirtækið ætlaði að hætta allri starfsemi á Ísafirði, sem þýðir að tuttugu sérhæfð tæknistörf hverfa úr bænum. Fjölmennur borgarafundur á sunnudag, krafðist þess að stjórnvöld létu málið til sín taka og að þingmenn allra flokka sameinuðust um aðgerðir. Ríkisstjórnin fundaði um málið í morgun. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni setja saman vinnuhóp með fulltrúum ráðuneyta og Ísfirðing til að fara yfir hvernig ríkisstjórnin geti komið að málum. "Það liggur ekkert fyrir ennþá hvernig það yrði. En Vestfirðingar eru sjálfir með ákveðnar hugmyndir um það og það er rétt að fara vel og vandlega yfir þær hugmyndir og sjá hvort eitthvað er hægt að gera," segir forsætisráðherra. Ástandið fyrir vestan sé alvarlegt, þótt það sé ekki nýtt að þar séu erfiðleikar í atvinnulífi. Fyrir Alþingi liggja frumvörp sem miða að því að fá kaupskipaútgerðir til að skrá skip sín á Íslandi að nýju, með því að bjóða þeim skattaívilnanir. Geir telur erfitt að grípa til einhverra slíkra aðgerða til að skjóta stoðum undir atvinnulíf fyrir vestan. Forsætisráðherra segist hafa fundað með bæjarstjóranum á Ísafirði og í febrúar hafi hann, iðanaðarráðherra og fleiri ráðherrar átt ágætan fund með Vestfirðingum. "Þeir hafa farið á mis við uppbygginguna sem tengst hefur stóriðju t.d. á Austurlandi og hér í nágrenni höfuðborgarinnar. Það er ein skýring. Síðan hafa náttúrlega aflaheimildir flust frá Vestfjörðum. Nýjasta vandamálið er svo að hátæknifyrirtækið Marel hyggst loka sinni starfsstöð þar. En þar hefur veruð mikill vaxtabroddur í hátæknistarfsemi sem á rætur að rekja langt aftur í tímann á Ísafirði, þar sem menn hafa verið mjög framsýnir og duglegir í því máli," segir Geir H Haarde forsætisráðherra.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira