Sjötíu kíló á 10 mánuðum 16. janúar 2007 09:15 Gísla Hvanndal líður frábærlega nú þegar hann er búinn að missa sjötíu kíló á tíu mánuðum. Hér er hann ásamt frænda sínum Alexander Þorvaldssyni.
Idolstjarnan fyrrverandi og Ólafsfirðingurinn Gísli Hvanndal Jakobsson hefur misst sjötíu kíló síðan hann fór í magaminnkunaraðgerð í maí á síðasta ári. Gísli, sem verður 22 ára í sumar, átti lengi við offituvanda að stríða en ákvað að gera eitthvað róttækt í sínum málum og drífa sig í aðgerð. „Ég hef haldið þessu til streitu með því að vinna mikið og maður hefur svitnað mikið,“ segir Gísli, sem var 164 kíló áður en hann gekkst undir aðgerðina. „Mér líður frábærlega. Þegar maður fer í svona aðgerð þá þarf maður að taka allt inn eins og manni er sagt að gera og svo á maður að hreyfa sig vel. Þetta er bara megrun og þessi aðgerð er ætluð sem gott hjálpartæki. Með hreyfingu á þetta ekki að klikka,“ segir hann. „Það eru dæmi um að fólk hafi farið tvisvar í svona aðgerð og beðið um að fara í þriðja sinn. Þetta er engin töfralausn og það er mjög auðvelt að klúðra þessu.“ Gísli segir megrunina hafa átt hug sinn allan seinasta árið og því hafi tónlistin þurft að sitja á hakanum. Einnig hefur hann verið upptekinn á sjónum en núna starfar hann hjá smíðafyrirtæki. „Það kemur að því þegar maður er búinn að koma sjálfum sér í lag að fara gera einhverja hluti,“ segir hann um tónlistarferilinn. „Það er kominn tími á að gefa út plötu en maður hefur bara ekki verið í ástandi til að gera neitt.“ Þrátt fyrir að hafa misst sjötíu kíló á aðeins tíu mánuðum ætlar Gísli ekki að láta staðar numið. „Fólk segir í kringum mig að ég megi ekki missa meira en ég ætla að fara í ræktina og ná mér í meiri vöðva. Núna þegar maður er búinn að koma sér í form er ekkert því til fyrirstöðu að fara í ræktina.“ Í gær birtist grein frá Gísla í Fréttablaðinu þar sem hann gagnrýndi Íraksstríðið harðlega. Hann játar að vera pólitískur í hugsun og útilokar ekki að láta heyra frekar í sér á þessu sviði. „Þetta er eina greinin sem ég hef sent inn en ég er búinn að skrifa margar greinar fyrir sjálfan mig. Kannski á ég eftir að senda inn fleiri greinar,“ segir hinn gjörbreytti Gísli Hvanndal.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Sjá meira