Syndug hjörtu á Rauðasandi 26. júlí 2007 12:57
Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. Gunnar var um fertugt þegar hann skrifaði söguna un Eyjólf kapelán og ástríðuglæpi Bjarna og Steinunnar á Sjöundá. Bókin kom út hjá Gyldendal í Danmörku haustið 1929 og vakti strax mikla athygli. Sagan er stundum sögð vera fyrsta alvöru íslenska glæpasagan þar sem réttarrannsókn spinnur söguþráðinn. Dagskráin verður flutt í því stórbrotna landslagi sem voru rammi þeirra dramatísku atburða er Gunnar notar sem efnivið í söguna, undir stórskornum fjöllum og við rauðgullinn skeljasand. Hún hefst kl. 20.00 með erindi Gunnars Björns Gunnarssonar, afkomanda skáldsins, um Svartfugl. Síðan munu leikararnir Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan leiklesa brot úr bókinni og Áshildur Haraldsdóttir leikur flautuverkið Lethe eftir Atla Heimi Sveinsson. Að lokum verður séra Sveinn Valgeirsson með hugvekju í Saurbæjarkirkju. Boðið verður upp á léttar veitingar að lokinni dagskrá og er áhugasömum bent á gott tjaldsvæði á staðnum. Dagskráin er samvinnuverkefni Bókaútgáfunnar Bjarts, Gunnarsstofnunar og Ferðafélags Íslands sem verður með gönguferð um svæðið frá 27. til 30. júlí.
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Sjá meira