Rýtingur í bak fráfarandi borgarstjóra frá eigin flokksmönnum 12. október 2007 18:45
Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjórnarfulltrúi og formaður stjórnar Orkuveitunnar, er á því að borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna hafi svikið oddvita sinn og því hafi ekki verið unnt að halda samstarfinu áfram við Sjálfstæðisflokkinn. Alfreð sagði á fundi Framsóknarmanna í Reykjavík í dag að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknar, hefði sýnt pólitískan kjark með því að slíta samstarfinu við Sjálfstæðismenn. Alfreð segir að það hafi blasað við öllum að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, hefði ekki notið trausts borgarfulltrúa úr eigin flokki. Það hefði því verið vonlaust fyrir Björn Inga að halda áfram samstarfinu við slíkar aðstæður. Alfreð er á því að í raun hafi borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðismanna gengið svo langt að reka rýting í bakið á eigin oddvita. Alfreð vildi ekki gefa mikið fyrir að hann væri maðurinn á bak við það meirihlutasamstarf sem nú er komið á í borginni. Hann sagði þó að skyndilegt brotthvarf sitt úr nefnd um byggingu nýs hátæknisjúkrahúss hefði aukið svigrúm sitt til að sinna áhugamálum sínum. Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, var hins vegar á því að Alfreð hefði komið meir að málum en hann vildi staðfesta. Hann sagði á fundinum í dag að um leið og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefði rekið Alfreð frá málefnum hátækni-spítalans hefði Alfreð getað einbeitt sér að því að fella meirihlutann í borgarstjórn.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira