Gripið til fullnægjandi aðgerða vegna Fjarðarárvirkjana 12. október 2007 14:02 MYND/Anton Brink
Iðnaðaráðherra telur að gripið hafi verið til fullnægjandi aðgerða til að tryggja öryggi Fjarðarárvirkjana en hefur lagt fyrir Orkustofnun að fylgjast áfram með framkvæmdum eystra til að tryggja öryggi virkjananna. Málefni Fjarðarárvirkjana komst í hámæli í sumar þegar í ljós kom að upphaflegum áætlunum um framkvæmdir hafði ekki verið fylgt. Iðnaðarráðherra fól Orkustofnun í ágúst að kalla eftir öllum hönnunargögnum og sömuleiðis að skoða aðstæður á framkvæmdasvæðinu og ræða við framkvæmdaraðila og fulltrúa sveitarstjórnar Seyðisfjarðar sem gefur út leyfi vegna virkjananna. Þá óskaði ráðherra jafnframt sérstaklega eftir því að kannað yrði hvort stærð vatnshverfla væri í samræmi við útgefin virkjanaleyfi.Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu hefur Orkustofnun nú skilað greinargerð þar sem fram kemur meðal annars að stærð hverfla sé í samræmi við ákvæði virkjunarleyfis. Þá er það mat stofnunarinnar að hönnunargögn uppfylli ákvæði reglugerðar þar að lútandi. Þá hefur leyfishafi gert nauðsynlegar endurbætur á þrýstivatnspípu sem upplýst var að hefði skemmst vegna rangra vinnubragða við lagningu hennar.Í greinargerðinni kemur fram að Orkustofnun beindi því til hlutaðeigandi að leyfishafi uppfyllti ákvæði laga um að afla byggingarleyfa frá Seyðisfjarðarbæ fyrir öllum leyfisskyldum framkvæmdum. Jafnframt var þeim tilmælum beint til leyfishafa að hann geri bæjarfélaginu grein fyrir öllum fyrirhugðum breytingum á framkvæmdum, haldi jarðraski við lagningu þrýstivatnapípu í lágmarki og lagfæri land að framkvæmdum loknum. Ennfremur er upplýst í greinargerð stofnunarinnar sú ákvörðun Seyðisfjarðarbæjar að auka eftirlit sitt með framkvæmdinni.
Mest lesið Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Búast má við töluverðum dembum Veður Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Fleiri fréttir Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira