Innlent

Skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreðs

Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkurborgar er samansafn af fólki sem hefur það eitt markmið að halda völdum segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Hann segir Björn Inga skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreð Þorsteinssonar.

Það kemur líklega fáum á óvart að nýi meirihlutinn í borginni er ekki draumameirihlutinn að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi borgarfulltrúa. Guðlaugur segir að nýi meirihlutinn sé einungis samansafn af fólki sem hafi það eitt markmið að halda völdum.

Björn Ingi og Alfreð féllust í faðma á fundi framsóknarmanna í höfuðstöðvum flokksins í dag eftir að Björn Ingi hafði útskýrt breytingar á meirihlutasamstarfi í borginni.

Komið hefur fram að Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hafi setið fundi þar sem nýr meirihluti var myndaður í borginni. Alfreð var mjög ósáttur við Guðlaug þegar Guðlaugur ákvað að taka hann úr byggingarstjórn Landsspítala-Háskólasjúkrahús. Aðspurður um hvort að það hafi haft áhrif á gang mála segir Guðlaugur að hann haldi ekki að fyrrverandi meirihluti hafi verið byggður á því að halda Alfreð Þorsteinssyni á launum. Það sem sameini hins vegar nýjan meirihluta sé að koma Alfreð aftur við kjötkatlana.

Guðlaugur segir að Björn Ingi Hrafnsson hafi komið sér á óvart. Hann sé skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreð Þorsteinssonar með öllum sínum kostum og göllum. Ljóst sé að Björn Ingi hafi ekki staðið við það sem hann lofaði og hann verði að lifa með því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×