Innlent

Reynsluleysi sjálfstæðismanna varð þeim að falli

Margrét Frímannsdóttir.
Margrét Frímannsdóttir. MYND/GVA

Reynsluleysi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks varð þeim að falli að mati Margrétar Frímannsdóttur, fyrrverandi formanns Alþýðubandalagsins og talsmanns Samfylkingarinnar. Hún segir ljóst að hluti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna hafi ætlað að kenna Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni lexíu en óvart misst stjórn á atburðarásinni.

„Þau ætluðu sér greinlega að kenna Vilhjálmi smá lexíu," sagði Margrét Frímannsdóttir í samtali við Vísi. „Þau misstu hins vegar stjórn á atburðarásinni og enduðu á því að skjóta sig í fótinn. Því má segja að reynsluleysi þeirra hafi komið þeim um koll og þau spiluðu þetta frá sér."

Margrét segir að atburðarásin í aðdraganda þess að meirihlutinn sprakk hafi verið sérkennileg. Hins vegar segir hún alveg ljóst að ákveðinn hluti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna hafi ráðist að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. „Þau halda fund með forystumönnum Sjálfstæðisflokks án Vilhjálms. Það segir meira en mörg orð. Þeir sem hafa verið lengi í pólitík sjá að þau eru með þessu að lýsa yfir vantrausti á borgarstjóra."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×