Lífið

Aniston ástfangin á ný

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Vinurinn Jennifer Aniston virðist hafa fundið ástina að nýju. Tímaritið People Magazine greinir frá því að hún hafi notið lífsins með óþekktu kyntrölli á veitingastað fyrir skömmu. Parið lét vel að hvort öðru og fékk Aniston nudd frá borðherranum á meðan beðið var eftir matnum. Þau spjölluðu saman í 3 klukkustundir og héldust í hendur við kertaljós og notalega stemningu. Aniston hefur verið einhleyp frá því að hún sagði skilið við leikarann Vince Vaughn í október síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.