Innlent

Starfsemi hafin á Tæknivöllum

miðnesheiði
miðnesheiði
Starfsemi er hafin á stærstum hluta iðnaðarsvæðis á svonefndum Tæknivöllum á Miðnesheiði. Að sögn Ríkharðs Ibsen, framkvæmdastjóra Lykil ráðgjafar, hafa 22 skemmur verið leigðar út og eftir standa þrjár skemmur. Meðal fyrirtækja á Tæknivöllum eru, ÍAV þjónusta ehf., Hringrás, Vélsmiðjan Völlur og Bílaleigan Geysir.

Svæðið, sem er í eigu fyrirtækisins Base ehf. er um 40.000 fermetrar. Hugmynd eigenda Base er að koma á fót iðnaðarsvæði, þar sem sterkir aðilar koma sér fyrir með möguleika á samstarfi við aðra á svæðinu. - eb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×