Fráleitt að Viðskiptaráð vinni gegn samkeppni á bankamarkaði 29. október 2007 16:25 MYND/Valgarður
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hafnar því sem fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 að ráðið vinni gegn samkeppni á bankamarkaði. Viðskiptaráð sendi frá sér ályktun nýlega þar sem afnámi vörugjalda og stimipilgjalda er fagnað og sagt stórt skref í átt að einfaldara og skilvirkara hagkerfi. Hins vegar leggst Viðskiptaráð gegn hugmyndum viðskiptaráðherra um beitingu lagasetningar á sviði gjaldtöku fjármála- og innheimtufyrirtækja. Segir ráðið að áform um afnám uppgreiðslugjalda hljóta að snúa eingöngu að Íbúðalánasjóði enda ekki grundvöllur fyrir því að meina viðskiptabönkum og sparisjóðum að innheimta slík gjöld. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, bendir á að fólk geti í dag tekið lán með og án uppgreiðslugjalds hjá bönkunum en skilmálar séu breytilegar á milli banka. Vextir af lánum með uppgreiðslugjaldi séu lægri en vextir af lánum án uppgreiðslugjalds. Það sé því eftir nokkru að slægjast fyrir fólk að taka lán með uppgreiðslugjaldi. Bankarnir greiði sjálfir uppgreiðslugjald Finnur bendir hins vegar á að ef bankar væru knúnir til þess að fella niður uppgreiðslugjaldið þyrftu þeir að hækka vexti því uppgreiðslugjaldið sé til komið vegna kostnaðs banka af lántöku. Ef til uppgreiðslu kemur verða þeir sjálfir fyrir kostnaði, það er þeir þurfi að greiða sjálfir uppgreiðslugjald. Gjaldið sé hluti af áhættustýringu bankanna. Ef vextir bankanna hækkuðu myndi eftirspurnin minnka og þá myndi staðan á fasteignalánamarkaði skekkjast enn frekar. „Viljum við hverfa aftur til tímans þegar Íbúðalánasjóður var allsráðandi á þessum markaði?" spyr Finnur. Hann bendir á að neytendur eigi að hafa frelsi til þess að semja um kjör við sína lánastofnun og á það leggi Viðskiptaráð áherslu. Því sé fjarri að ráðið vinni gegn samkeppni á bankamarkaði eins og haldið hafi verið fram.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Sjá meira