Innlent

Alþingi staðfestir bráðabirgðalög vegna raflagna á varnarsvæðinu

MYND/SK

Alþingi staðfesti í dag bráðarbirgðalög ríkisstjórnarinnar frá því í júlí um notkun raflagna og raffanga á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Um var ræða tímabundna heimild til að nota núverandi raflagnir á gamla varnarsvæðinu en þær uppfylla ekki íslensk skilyrði. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar taldi ekki mögulegt að skipta um rafkerfi áður en taka átti íbúðir á svæðinu í notkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×