Sakar Neytendasamtökin um hótanir 6. nóvember 2007 11:09 Sigurjón Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands.
Formaður Tannlæknafélags Íslands segir Neytendasamtökin hafa staðið í hótunum í tengslum við könnun samtakanna á verðskrá tannlækna. Samtökin birtu lista þeirra tannlækna sem ekki svöruðu könnuninni. Eðlileg vinnubrögð segir formaður Neytendasamtakanna. „Í stað þess að leita samstarfs þá stóðu þeir í hótunum," sagði Sigurjón Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, í samtali við Vísi. „Ég svara ekki spurningum undir hótunum." Neytendasamtökin sendu öllum starfandi tannlæknum bréf í byrjun septembermánaðar þar sem þeir voru beðnir um að fylla út verð fyrir 13 aðgerðarliði. Bréfin voru send til 224 tannlækna en 82 ákváðu ekki að svara þar á meðal Sigurjón Benediktsson. Í bréfi samtakanna kom fram að nöfn þeirra sem neituðu að svara yrðu birt sérstaklega. Sigurjón telur ekki rétt að samtökin birti nöfn þeirra sem kjósa að svara ekki. „Ég svara ekki bréfum á þessum forsendum en öðrum félögum er hins vegar frjálst að gera það." Sigurjón segist hafa sent Neytendasamtökunum bréf þar sem þessum vinnuaðferðum var mótmælt. Þá hafi hann einnig boðið samtökunum upp á samstarf í tengslum við könnunina. Því bréfi hafi hins vegar aldrei verið svarað. „Ég er ekki á móti verðkönnuninni sem slíkri heldur fyrst og fremst þessum vinnuaðferðum." Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir samtökin hafa það sem vinnureglu að birta nöfn allra sem ekki svara í könnunum. „Við fengum bréf frá Tannlæknafélaginu þar sem þessari vinnureglu var mótmælt. Við sendum svar til baka þar sem við útskýrðum okkar afstöðu. Við vorum ekki að hóta einum eða neinum. Okkur þótti rétt að láta tannlækna vita fyrirfram af þessari vinnureglu. Að sjálfsögðu höfum ekkert á móti samstarfi."
Mest lesið Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Átján ára sótti áfengissendingu Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Sjá meira