Göng til Eyja munu kosta 50-80 milljarða króna Sighvatur Jónsson skrifar 24. júlí 2007 18:59
Vestmannaeyjagöng munu kosta á bilinu fimmtíu til áttatíu milljarða króna, samkvæmt nýrri skýrslu íslenskrar verkfræðistofu. Í skýrslunni er það talið álitamál hvort réttlætanlegt sé að grafa jarðgöng á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið er. Vestmannaeyjabær bað samgönguráðuneytið um skýrsluna, en hún er unnin af verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Skýrslan verður kynnt í ríkisstjórn á föstudag og gerð opinber í framhaldi. Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu segir að niðurstaðan sé sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng, en kostnaður er talinn verða á bilinu fimmtíu til áttatíu milljarðar króna, og áhættan mikil. Skýrslan er unnin úr gögnum sem hafa verið unnin fyrir samgönguyfirvöld og Ægisdyr, áhugafélag um gerð jarðganga milli lands og Eyja. Lægri talan, fimmtíu og tveir milljarðar króna, miðast við átján kílómetra göng sem verði steypufóðruð fyrstu þrjá kílómetrana frá Eyjum. Verði öll göngin hins vegar steypufóðruð er kostnaðurinn áætlaður áttatíu milljarðar króna. Um þriðjungur þess kostnaðar er sagður vegna óvissu, vaxta, rannsókna og hönnunar. Verði ákveðið að vinna áfram að málinu yrðu næstu skref samkvæmt skýrslunni ítarlegri jarðfræðilegar rannsóknir, er lúta sem dæmi að berglögum norðan við Heimaey og aðstæður á Landeyjarsandi. Þær rannsóknir eru taldar geta kostað frá rúmum hundrað til tæplega þrjú hundruð milljónir. Ekkert hefur enn verið slegið af með jarðgöng, þótt niðurlag skýrslunnar megi túlka þannig að jarðgangadraumar Eyjamanna fjarlægist. Þar segir að álitamál sé hvort nokkurn tímann geti verið réttlætanlegt að grafa og reka þetta löng jarðgöng djúpt undir sjó á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið vissulega sé og dæmin sanni. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir tölurnar hærri en vonast hafi verið eftir. Hann segist eiga eftir að lesa yfir skýrsluna og eftirlætur sér fróðari mönnum að túlka hana, og byggja ákvörðun á henni. Hvað varðar orðalag um jarðfræðilega virkni bendir Elliði á að hann hafi búið alla sína ævi í Eyjum, og aðeins einu sinni upplifað eldgos. Hann segist hafa heyrt því fleygt að svæðið sem göngin eigi að fara um sé ekki eins virkt og önnur svæði.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira