Lífið

Fimmta barn Brad og Angelinu

Angelina Jolie og Brad Pitt eiga fjögur börn. Elstur er Maddox sem Jolie ættleiddi frá Kambódíu en Pitt hefur gengið honum í föðurstað. Næstur honum í aldri kemur síðan Pax sem hjónakornin ættleiddu frá Víetnam. Þar á eftir er Zahara en hún kemur frá Eþíópíu og loks Shiloh sem hjónakornin eignuðust á „hefðbundinn“ hátt. Á myndinni sést stórfjölskyldan spóka sig nýverið.
Angelina Jolie og Brad Pitt eiga fjögur börn. Elstur er Maddox sem Jolie ættleiddi frá Kambódíu en Pitt hefur gengið honum í föðurstað. Næstur honum í aldri kemur síðan Pax sem hjónakornin ættleiddu frá Víetnam. Þar á eftir er Zahara en hún kemur frá Eþíópíu og loks Shiloh sem hjónakornin eignuðust á „hefðbundinn“ hátt. Á myndinni sést stórfjölskyldan spóka sig nýverið. NordicPhotos/GettyImages

Ofurstjörnuhjónin Brad Pitt og Angelina Jolie eru samkvæmt breska blaðinu Daily Mail á leiðinni til Eþíópíu en þar ætla þau að ættleiða sitt fjórða barn.

Það virðist því vera skammt stórra högga á milli hjá leikurunum því fyrir skömmu voru velflestir slúðurmiðlar uppfullir af fréttum um að ekki væri allt með felldu í Paradís. Hjónakornin sáust rífast eins og hundur og köttur í París en nú virðist allt vera fallið í ljúfa löð og þau ætla að fara til Eþíópíu og ættleiða þar nýjan erfingja.

Angelina og Brad eiga saman fjögur börn, Shiloh sem þau áttu á „hefðbundinn“ hátt og svo Maddox frá Kambódíu, Zahara frá Eþíópíu og Pax frá Víetnam. Sammkvæmt heimildum Daily Mail hefur Angelina miklar áhyggjur af því að Zahara kunni að einangrast því hún sé frá miklu ólíkari heimshluta en öll hin. „Maddox og Pax koma báðir frá Asíu en Zahara er frá Afríku og Angelina vill að hún nái meiri og betri tengingu við hina fjölskyldumeðlmina,“ lét náinn samstarfsmaður hafa eftir sér í samtali við blaðið og bætti við að skötuhjúinn hefðu aldrei farið leynt með að þau vildu fleiri börn í þessa fjölþjóðlegu fjölskyldu sína.

Samkvæmt Daily Mail er talið líklegast að parið haldi utan til Afríku í nóvember og í kjölfarið muni svo langt og strangt ættleiðingarferli taka við. „Þau eru ótrúlega spennt fyrir nýju barni og ef það er eitthvað sem ætti að færa þau nær hvort öðru, þá væri það nýr fjölskyldumeðlimur,“ sagði ónafngreindur samstarfsmaður hjónanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.