Átök um eignarhald á Hitaveitu Suðurnesja 30. júní 2007 18:52
Átök eru um eignarhald á Hitaveitu Suðurnesja á milli tveggja blokka, annars vegar Reykjanesbæjar og fjárfestingafélagins Geysis Green Energy og hins vegar Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri Geysis efast um að markmið ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu Hitaveitunnar nái fram að ganga þar sem sveitarfélög berjist um bitann. Það má segja að það séu miklar sviptingar í tengslum við Hitaveitu Suðurnesja. Hafnarfjörður og Reykjanesbær hafa ákveðið að nýta sér forkaupsrétt á fimmtán prósenta hlut ríkisins í Hitaveitunni. Einnig er líklegt að sveitarfélögin tvö kaupi rúmlega 28 % hlut sjö annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum og Suðurlandi. Í gær seldu sveitarfélögin sjö sinn hlut til Geysis Green Energy sem er í eigu FL. Group, Glitnis og fleiri og var kaupvirðið 15 milljarðar króna. Kaupin hefðu gengið í gegn ef Hafnarfjörður og Reykjanesbær hefðu ekki nýtt sér forkaupsréttinn. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar og stjórnarformaður Hitaveitunnar segir að ákvörðun Hafnarfjarðar verði til þess að Reykjanesbær nýti sinn forkaupsrétt. Bærinn vilji vernda hagsmuni sína og tryggja sér stöðu til að hafa áhrif á mál Hitaveitunnar. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fundaði í gær hvort hún ætti að kaupa hlut sveitarfélaganna en frestuðu ákvörðun um það fram yfir helgi. Árni segir Orkuveituna hafi reynt að fara bakdyramegin inn í Hitaveituna með því að greina ekki frá fyrirætlunum sínum við Reykjanesbæ, sem er stærsti hluthafinn í Hitaveitunni. Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitunnar vísar þessu alfarið á bug og segir fjölmörg sveitarfélög hafa boðið Orkuveitunni að kaupa sinn hlut í Hitaveitunni sem varð síðan ekki úr. Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis Green Energy segir spurningar vakna um hvort markmið ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu orkufyrirtækja nái fram að ganga þegar sveitarfélög þar sem stjórnmálaflokkar ráði ríkjum kaupi þau. Gunnar Svavarsson Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði segir Geysir Green hafa gert bænum tilboð sem ákveðið hafi verið að hafna. Hitaveitan sé álitlegur fjárfestingakostur. Hafnarfjarðarbær hafi verið í góðu samstarfi við Orkuveituna og stefnt sé að áframhaldandi samstarfi. Nýti bæði sveitarfélögin forkaupsréttinn eignast Hafnarfjarðarbær 28% í Hitaveitunni og Reykjanesbær um 72 %.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira