Pressa á birgja skipti mestu 10. mars 2007 09:00 Nokkuð var um réttarhlé meðan beðið var eftir vitnum í gær, og nýttu sækjandi, verjandi og aðstoðarmenn sér þessar stundir milli stríða til að rabba saman. MYND/GVA
Sú pressa sem viðskipti Baugs við Nordica, félag Jóns Geralds Sullenberger í Bandaríkjunum, skapaði í samningum við innlenda birgja skipti meira máli en þau viðskipti sem í raun og veru áttu sér stað. Þetta sagði Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri Aðfanga, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Eins og komið hefur fram í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra, voru verðtilboð sem Jón Gerald aflaði í vörur gjarnan notuð til þess að setja þrýsting á íslenska birgja til þess að fá betri verð. Lárus tók í gær undir þetta, og benti á að viðskipti hafi verið milli Baugs og Nordica fyrir í kringum 60 milljónir króna á ári fram til ársins 1999, á sama tíma og velta Aðfanga, sem sér um innkaup fyrir Bónus, Hagkaup og 10-11, var talin í milljörðum. Viðskiptin við Nordica hafi verið brot af innflutningi Aðfanga, en pressan sem viðskiptin settu á innlenda birgja hafi verið meira virði. Jón Ásgeir og Tryggvi, tveir sakborninga í málinu, hafa haldið því fram að mánaðarlegar greiðslur frá Baugi til Nordica hafi verið styrkur til Jóns Geralds. Þannig hafi honum verið greitt fyrir að afla tilboða, fara á vörusýningar og fleira, sem ekki hafi alltaf leitt til sölu til á Íslandi. Jón Ásgeir og Tryggvi eru hins vegar ákærðir fyrir að draga fé úr Baugi til Gaums, fjölskyldufyrirtækis Jóns Ásgeirs, til að fjármagna hlut Gaums í skemmtibátnum Thee Viking. Lárus var í gær spurður hvort þessi viðskipti við Nordica ættu sér fordæmi í öðrum viðskiptum Baugs, og nefndi hann danskt fyrirtæki, Simon‘s Agentur, sem hafi þjónað sama tilgangi. Hann hafi þó aldrei verið spurður út í þau viðskipti við rannsókn málsins. Spurður hvort samið hafi verið um mánaðarlegar greiðslur til forsvarsmanns þess fyrirtækis staðfesti Lárus að hann hafi sjálfur samið um þær greiðslur. Hann sagðist hins vegar ekkert hafa vitað af mánaðarlegum greiðslum frá Baugi til Nordica, sem ákært er vegna.
Tengdar fréttir Kauprétti ekki leynt Engin leynd var um kauprétt þriggja æðstu stjórnenda Baugs, sem samið var um við stofnun félagsins árið 1998, sagði Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður félagsins, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. 10. mars 2007 08:30 Baugsmálið á Mánudaginn Segja má að færeyskir dagar verði í dómsalnum á mánudag, en þá munu samkvæmt dagskrá eingöngu færeysk vitni koma fyrir dóminn. Meðal vitnanna verða feðgarnir Niels og Hans Mortensen, sem reka SMS verslunarkeðjuna í Færeyjum sem er að hálfu leyti í eigu Baugs. 10. mars 2007 07:00 Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira
Kauprétti ekki leynt Engin leynd var um kauprétt þriggja æðstu stjórnenda Baugs, sem samið var um við stofnun félagsins árið 1998, sagði Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður félagsins, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. 10. mars 2007 08:30
Baugsmálið á Mánudaginn Segja má að færeyskir dagar verði í dómsalnum á mánudag, en þá munu samkvæmt dagskrá eingöngu færeysk vitni koma fyrir dóminn. Meðal vitnanna verða feðgarnir Niels og Hans Mortensen, sem reka SMS verslunarkeðjuna í Færeyjum sem er að hálfu leyti í eigu Baugs. 10. mars 2007 07:00