Sakfelldur fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn 8. október 2007 10:47 Önnur árásin átti sér stað í Bolungarvík. MYND/Vilmundur
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun karlmann um tvítugt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn með um mánaðarmillibili. Var hann jafnframt dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu rúmar 360 þúsund krónur í miska- og skaðabætur. Fyrri árásin átti sér stað í Bolungarvík í apríl en þá réðst hinn ákærði á manninn, skallaði hann og sló í andlitið og kýldi í skrokk með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut ýmis meiðsl. Í síðara tilvikinu, sem átti sér stað í Súðavík í maí, réðst maðurinn á sama mann, sló hann í andlitið og sparkaði í gagnauga hans þannig að hann hlaut meðal annars glóðarauga og það flísaðist úr framtönn. Maðurinn játaði á sig báðar árásir en tók það fram að í síðara tilvikinu hefði fórnarlambið manað hann í slagsmál við sig. Við ákvörðun refsingar horfði dómurinn til þess að maðurinn hefði í tvígang ráðist harkalega að fórnarlambi sínu en það var virt honum til málsbóta að hann játaði brot sín fyrir dómi. Enn fremur var horft til þess að maðurinn hafði ekki áður komist í kast við lögin og þess hve ungur hann er. Þótti tveggja mánaða fangelsi sem skilorðsbundið er til tveggja ára hæfileg refsing.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira