Vilja afnema einokun ÁTVR 8. október 2007 11:10 Aðeins ÁTVR verður heimilt að selja sterkt áfengi samkvæmt frumvarpinu. MYND/GVA
Lagt er til að einokun ÁTVR í sölu léttvíns og bjórs verði afnumin í frumvarpi sem sautján þingmenn úr þremur flokkum standa á bak við. Þetta er í fimmta skiptið sem frumvarpið er lagt fram á Alþingi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að smásölum verði gert heimilt að selja áfengi sem er minna 22 prósent af styrk. ÁTVR mun hins vegar áfram hafa einkaleyfi í sölu sterks áfengis. Þá verður útsöluverð á léttvíni og bjór gefið frjálst en tekið fram að bannað sé að selja áfengi undir kostnaðarverði. Eiga lögin að öðlast gildi 1. júlí á næsta ári. Alls standa 17 þingmenn úr Framsóknarflokk, Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu að frumvarpinu. Þar á meðal Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnarsson, Birkir J. Jónsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Frumvarpið hefur fjórum sinnum áður verið lagt fram á Alþingi í sömu mynd. Þá var flutningsmaður frumvarpsins Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Lengst komst málið rétt fyrir kosningar í vor þegar meirihluti allsherjarnefnd Alþingis kláraði umfjöllun um það og lagði til að það yrði samþykkt. Aðeins fulltrúar Vinstri grænna í allsherjarnefnd lögðust gegn málinu.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira