Innlent

Stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða

MYND/Stöð 2

Vinstri græn á Ísafirði vilja að stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri eftir lokun fiskvinnslufyrirtækisins Kambs í bænum.

Í yfirlýsingu segja Vinstri græn enn fremur að mikilvægt sé að íbúar sjávarbyggða vítt og breytt um landið fái um það skýr skilaboð frá stjórnvöldum hvernig bregðast eigi við aðstæðum sem nú eru uppi á Flateyri og geti blasað við öðrum sjávarbyggðum hvenær sem er við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sem sé alfarið á ábyrgð stjórnvalda.

Krafa íbúa sjávarbyggðanna sé að grunnréttur þeirra til auðlinda fiskimiðanna sé tryggður til frambúðar og þar með atvinnu og búsetuöryggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×