Sjá helst sóknarfæri í virkjunarlóni sem nú telst umhverfisslys 20. apríl 2007 19:06
Frambjóðendur þeirra tveggja flokka sem helst kenna sig við umhverfisvernd hafa, spurðir um sóknarfærin í atvinnumálum, sérstaklega nefnt Bláa lónið. Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja segir að samkvæmt gildandi lögum sé Bláa lónið umhverfisslys, sem yrði ekki leyft í dag.Í kosningaþætti Stöðvar tvö í Suðurkjördæmi í síðustu viku voru frambjóðendur flokka spurðir um atvinnumál og hvar þeir sæju sóknarfærin. Bæði Atli Gíslason, oddviti vinstri grænna, og Ásta Þorleifsdóttir, oddviti Íslandshreyfingarinnar, nefndu Bláa lónið sem einn helsta kostinn.Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir Bláa lónið skilgreint sem umhverfisslys, samkvæmt núgildandi lögum. Upphaf lónsins má rekja til jarðgufuvirkjunar Hitaveitunnar í Svartsengi sem hóf starfsemi árið 1975, löngu áður en lög um umhverfismat voru sett. Þegar búið var að virkja orkuna úr jarðsjónum, sem kom upp úr borholunum, var affallinu einfaldlega dælt út í hraun. Nokkrum árum seinna hafði myndast þar lón sem fólk tók að baða sig í og var fljótlega nefnt Bláa lónið.Júlíus segir að þetta yrði ekki leyft í dag. Í nýjum virkjunum sé þess krafist að vatninu sé aftur dælt ofan í jörðina. Þannig er það til dæmis gert í Hellisheiðarvirkjun. Í þessu ljósi verður það að teljast athyglisvert að stjórnmálaflokkar sem setja umhverfisvernd á oddinn skuli sjá sóknarfærin í virkjunarlóni sem nú telst vera umhverfisslys.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira