Lífið

Afmælistónleikar Kaupþings kosta yfir þrjátíu milljónir

Bankabræður bjóða til veislu
Bankabræður bjóða til veislu MYND/365

Afmælistónleikar Kaupþings verða haldnir á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið næstkomandi og er engu til sparað við að gera þá sem glæsilegasta úr garði. Heimildir Vísis herma að herlegheitin kosti yfir þrjátíu milljónir en Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi Kaupþings vill ekkert gefa upp um kostnaðinn. Hann segir rekstur Kaupþings ganga vel og að bankinn vilji nota 25 ár afmælið til að bjóða þjóðinni í tónlistarpartý.

Einar Bárðarson sem skipuleggur tónleikana fyrir Kaupþing segir þetta stærstu tónleika sem Consert hefur staðið að. "Við höfum staðið fyrir 30 tónlistarviðburðum þar á meðal með Jose Carreras, Josh Groban og Van Morrison en þessir tónleikar toppa allt," segir Einar.

Benedikt segir að sviðið verði staðsett fyrir framan litlu stúkuna. Gestir geta því horft á tónleikana úr stóru stúkunni en einnig verður gerð brú niður á völlinn þar sem hægt verður að standa. Kaupþing hefur flutt inn sérhannaðar plötur frá Bretlandi sem munu þekja völlinn og hlífa honum. Fimm fjörtíu feta gámar með plötunum eru komnir til landsins en ekki verður hægt að hefjast handa við að koma þeim og sviðinu upp, fyrr en eftir leik Vals og Breiðabliks sem fram fer á vellinum á fimmtudagskvöldið.

Á tónleikunum verður hægt að berja helstu hljómsveitir og tónlistarmenn landsins augum og má þar nefna Pál Óskar, SS-Sól, Todmobile, Garðar Thor Cortes, Nylon, Mugison og fleiri. Tónleikarnir byrja klukkan sex og er aðgangur ókeypis. Þeir sem ekki komast geta hlustað á beina útsendingu á RÚV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.