Innlent

Skítur og viðbjóður á flugvellinum

Frárennslislagnirnar á Reykjavíkurflugvelli hafa verið stíflaðar frá því í febrúar með tilheyrandi sóðaskap og óþægindum.Enginn kannast við að bera ábyrgð á lögnunum.

Skólpblandað regnvatn hefur flætt upp úr tveimur brunnum við skýli 21 hjá Fluggörðum í meira en ár. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar segir eigendur skýlanna bera ábyrgð á viðhaldi og hefur farið fram á lagnirnar verði lagaðar. Eigendur segja hins vegar borgina bera ábyrgð þar sem þeir greiði öll gjöld til borgarinnar þar á meðal holræsagjöld. Málið hefur velkst fram og til baka en á meðan heldur skólpið áfram að flæða upp úr brunnunum.

Alfhild Nielsen, formaður Bygg á BIRK sem er félag eigenda á Reykjavíkurflugvelli, segir vatnið sem komi upp úr brunninum vera blanda af yfirborðsvatni, hitaveituvatni og skólpi. Hún segir mikinn viðbjóð koma upp úr brunninum og að þetta verði að laga.

Í miklum rigningum eins og þeim sem hafa verið að undanförnu flæðir skólpið upp úr brunnunum og rennur sem fljót niður að athafnasvæði Þyrluþjónustunnar þar sem það myndar síðan hálfgert stöðuvatn með tilheyrandi óþægindum fyrir starfsemina þar.

Sigurður Pálmason, framkvæmdarstjóri Þyrluþjónustunnar segir ástandið skaða starfsemina. Vélar þeirra þurfi að fara um svæði sem sé fullt af vatni og ekki sé gaman að hafa skít og klósettpappír í bakgarðinum hjá sér.

Á meðan fuglarnir finna sér fæðu í skólpinu og eru líklega þeir einu sem sjá eitthvað jákvætt við ástandið þá finnst engin laust á því. Alfhild segir menn vísa hvern á annan og á meðan er ekkert gert. Engin sé tilbúinn til að bera ábyrgð á ástandinu.

Fyrirhugaður er fundur með borgarfulltrúum vegna málsins síðar í þessum mánuði.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×