Innlent

Rafmagnslaust á Húsavík

MYND/KK

Rafmagnslaust er á Húsavík sem stendur. Rarik vinnur að viðgerðum en vont veður er í bænum, norðanátt og slydda.

Einn viðmælandi Vísis á Húsavík lýsti yfir áhyggjum af því að ekki næðist útvarp á svæðinu en svo virðist sem útvarpssendingar Ríkisútvarpsins liggi niðri í rafmagnsleysinu.

Starfsmaður Rarik var önnum kafinn við að koma rafmagni á bæinn þegar Vísir náði sambandi við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×