Innlent

Vatnstjón í vesturbæ Reykjavíkur

Úr safni.
Úr safni. MYND/365

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að fjölbýlihúsi í vesturbæ Reykjavíkur laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði gleymst að skrúfa fyrir krana í eldhúsi íbúðar á þriðju hæð með þeim afleiðingum að vatn lak niður á hæðina fyrir neðan.

Húsráðandi var fjarverandi þegar slökkvilið bar að garði en ekki urðu miklar skemmdir vegna lekans að sögn slökkviliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×