Innlent

Tekinn tvisvar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna

Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður var tvisvar í nótt stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á Akranesi stöðvaði manninn fyrst laust fyrir miðnætti í gær.

Þá var hann að keyra á þjóðveginum skammt frá mynni Hvalfjarðarganga. Við nánari leit í bílnum fann lögreglan þrjú grömm af meintu maríjúna. Manninum var sleppt af lokinni yfirheyrslu. Um klukkan hálfþrjú í nótt var hann stöðvaður aftur í þetta skiptið af lögreglunni í Borgarnesi sem tók bifreiðina af manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×