Frægir Íslendingar skrá sig á Facebook 6. október 2007 06:00 Einar Bárðarson virðist vera nýr á Facebook því hann á bara átta vini enn sem komið er. Þeirra á meðal er Garðar Thór Cortes.
Yfir sjö þúsund Íslendingar hafa skráð sig á vefsvæðinu Facebook en heildarfjöldi skráninga á heimsvísu er hátt í 40 milljónir. Þekktir Íslendingar sjá sér greinilega hag í þátttöku því þeir skipta tugum. Facebook er eins og margir vita heimasíða þar sem hægt er að sanka að sér „vinum“ úr öllum áttum bæði með því að finna gamla félaga og stofna til nýrra vinasambanda. Aðeins eru liðin rúm þrjú ár frá stofnun síðunnar sem varð vinsæl á mettíma og fór á einu ári frá því að vera 60. vinsælasta síða Bandaríkjanna í 7. sætið. Íslendingar hafa tekið Facebook opnum örmum. Meðal þekktra einstaklinga sem hafa ákveðið að taka þátt í Facebook ævintýrinu eru söng- og leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir, Ruth Reginalds og umboðsmaður Íslands, sjálfur Einar Bárðarson. Sá síðastnefndi virðist þó tiltölulega nýbúinn að skrá sig því hann á enn sem komið er aðeins átta vini, fáa en góða. Þeirra á meðal er að sjálfsögðu stórtenórinn Garðar Thór Cortes sem er eins og allir vita á mála hjá Einari og umboðsskrifstofu hans í London. Fyrrum idol-dómarinn og söngkonan Sigríður Beinteinsdóttir á bæði Ruth Reginalds og sjónvarpskonuna Svanhildi Hólm Valsdóttur að vinkonum á Facebook. Sömuleiðis hafa leikkonurnar Anita Briem og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir tengst þar vinaböndum en þær eru báðar búsettar í Los Angeles í Kaliforníu. Aníta heldur þó einnig tengslum við leikkonur á Íslandi því Halla Vilhjálmsdóttir er á listanum hennar. Af öðrum sem hafa skráð sig má nefna leikarann Guðmund Inga Þorvaldsson og fyrrverandi sjónvarpsmanninn Fjalar Sigurðsson. Síðan virðist almennt eiga upp á pallborðið hjá leikurum og leikkonum því þær María Heba Þorkelsdóttir og Tinna Lind Gunnarsdóttir, eiginkona Garðars Thórs, eru líka með sitt eigið svæði á Facebook. Af tónlistarfólki má auk þeirra Siggu og Ruthar nefna Vilhelm Anton Jónsson, Ágústu Evu Erlendsdóttir og Klöru Ósk Elíasdóttur en hún er sú eina af Nylonstúlkunum sem er skráð.
Mest lesið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Fleiri fréttir „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu Sjá meira