Hafa það gott í Mónakó Gistu á glæsilegu skemmtiferðaskipi 11. júní 2007 07:30 Crystal Harmony er meðalstór skemmtiferðaskip en þykir eitt allra glæsilegasta sinnar tegundar í heiminum.
Íslensku keppendurnir á Smáþjóðaleikunum í Mónakó, sem lauk á sunnudaginn var, nutu lífsins á milli æfinga og keppna um borð í einu glæsilegasta skemmtiferðaskipi heims, Crystal Harmony. Vegna skorts á hótelherbergjum í Mónakó brugðu skipuleggjendur leikanna á það ráð að leigja heilt skemmtiferðaskip fyrir alla keppendur leikanna, sem eru á annað þúsund talsins. Skipið stóð á besta stað við höfnina í Mónakó og segir Örn Andrésson, aðalfararstjóri íslenska hópsins, að þessi gistingarmáti sé nokkuð frábrugðin hinu „hefðbundna" hótellífi en jafnframt mun betri sem slíkur. Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorritt Moussaieff og Albert prins af Mónakó heilsuðu upp á keppendur á skipinu í fyrradag. „Krakkarnir voru mjög ánægðir með þetta. Þau hafa ferðast víða og prófað margt en þetta er með því skemmtilegra sem þau hafa lent í," segir Örn. Glæsilegar vistarverur Eins og sjá má á þessum myndum hefur ekkert verið til sparað í innréttingu Harmony-skipsins. Miðað við vistarverur á Harmony ætti ánægja íslenska hópsins ekki að koma á óvart. Í skipinu eru tvær sundlaugar, spilavíti, lítil verslunarmiðstöð, tugir veitinga- og skemmtistaða, bókasafn, kvikmynda- og leikhús. Helsta stolt skipsins er hins vegar 1000 fermetra líkamsræktarstöð og baðstofa sem innréttuð er í Feng Shui-stíl, þar sem boðið er upp á allar tegundir af nuddi og dekri nánast hvenær sólarhringsins sem er. Einnig má finna golfhermi og púttvöll, skvassvöll og bókasafn, og þá er einnig er starfræktur vín- og vindla klúbbur á skipinu. „Það væsir ekki um mann," sagði Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður íslenska körfuboltaliðsins. „Verslunarmiðstöðin og spilavítið var ekki opið fyrir keppendur en það var samt hægt að finna sér nóg til afþreyingar. Við kvörtuðum í það minnsta ekki." Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff heimsóttu skipið ásamt Alberti prins í fyrradag og heilsuðu upp á íslenska hópinn.
Mest lesið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Fleiri fréttir Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Sjá meira