Ríkisstjórnarflokkar hafi aðeins ákveðið að mynda ríkisstjórn 31. ágúst 2007 14:24
Ríkisstjórnin hefur gert fremur lítið, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, en um 100 dagar eru frá því að ríkisstjórnin komst til valda. Steingrímur segir samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar byggt á óljósum sáttmála og að ríkisstjórnarflokkarnir hafi raun ekki tekið neinar ákvarðanir aðrar en að mynda ríkisstjórnina.Steingrímur var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2 þar sem hann ræddi flokksráðsfund Vinstri - grænna sem fram fer um helgina og nýja ríkisstjórn.„Ég hef verið undrandi á því hvað viðbrögð stjórnarinnar hafa verið dauðyflisleg við ýmsu sem komið hefur upp, eins og þorskaflaniðurskurðinum og mótvægisaðgerðum og svona sem menn eru vandæðast og vaklast með. Ég held að það stafi að því í stjórnarsáttmálanum er áfkaflega lítið um það að gengið sé frá hlutum með skýrum hætti. Það vekur undrun á hversu almennum og fljótandi forsendum sérstaklega Samfylkingin fór inn í þetta samstarf. Það þýðir að þegar málin koma upp vita menn ekki fyrir hvað ríkisstjórnin stendur," segir Steingrímur.Hann bendir sem dæmi á vandræðagang hjá stjórninni með fjármál sveitarfélaganna. Skoðanir í stjórnarflokkunum á því hvort og þá hvernig eigi að taka á fjármálum sveitarfélagnna séu jafnmargar og þeir sem tjáð sig hafa um málið. „Það er af því að stjórnin hefur ekki rætt þetta og það hefur ekki verið samið um neitt í þessum efnum þegar stjórnin var mynduð."„Þetta er ávísun á það að eina ákvörðunin sem var tekin síðastliðið vor var að búa þessa ríkisstjórn til. Það var í raun og veru ekki gengið frá neinu öðru," segir Steingrímur.Hann telur að Samfylkingin hafi samið af sér og sama stjórnarstefna sé við lýði fyrir og eftir kosningar. „Þetta er í aðalatriðum stefna Sjálfstæðisflokksins sem ræður ferðinni og er búin að gera hér í landinu síðustu 16 ár, því miður," segir Steingrímur. Samfylkingin hafi gefið upp sitt hlutskipti að vera mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn.Steingrímur segir eðlilegt að ríkisstjórnin fái sína hveitibrauðsdaga en hún hafi ekkert gert nema sagst ætla að gera allt fyrir alla og því ekki úr miklu fyrir stjórnarandstöðuna að moða. „En menn skulu hafa það alveg á hreinu og hafa engar áhyggjur af því að eftir því sem málin koma upp og viðfangsefnin falla til þá verður stjórnarandstaðan á sínum stað. Við munum sjá um það að í Vinstrihreyfingunni - gærnu framboði að veita þessari ríkisstjórn verðugt aðhald," segir Steingrímur.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira