Innlent

Bæjarstjóraskipti í Mosfellsbæ í dag

MYND/GVA

Haraldur Sverrisson tekur við starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar í stað Ragnheiðar Ríkharðsdóttur sem sest nú á þing í október. Hún hefur gegnt starfi bæjarstjóra fyrir Sjálfstæðisflokkinn í rúmlega fimm ár.

Haraldur var skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu í sjö ár og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Mosfellsbæjar frá 2002. Haraldur hefur sem bæjarfulltrúi, formaður bæjarráðs og formaður skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar áralanga reynslu af starfssemi Mosfellsbæjar. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og með framhaldsnám í fjármálum frá University of Arizona í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×