Dómur í Baugsmálinu í dag 28. júní 2007 11:05 MYND/GVA
Dómur verður kveðinn upp klukkan þrjú í dag í þeim hluta endurákærunnar í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði aftur í hérað. Um er að ræða níu heila ákæruliði og hluta tveggja annarra sem héraðsdómur vísaði frá í upphafi maímánaðar eftir ein umfangsmestu réttarhöld í íslenskri réttarsögu. Í þeim dómi var Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Baugs, dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri fyrirtækisins, í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í málinu, áfrýjaði ákæruliðunum sem vísað var frá til Hæstaréttar sem komst að því í byrjun síðasta mánaðar að héraðsdómi bæri að fjalla um níu ákæruliði og hluta tveggja annnar. Málflutningur vegna þeirra var í héraðsdómi um miðjan mánuðinn. Flestir ákæruliðanna sem fjallað verður um í dómnum í dag snúa að meintum ólöglegum lánveitingum sem Jóni Ásgeiri er gefið að sök að hafa hlutast til um frá Baugi til félaganna Gaums og Fjárfars og systur sinnar Kristínar. Þessum ákæruliðum var vísað frá héraðsdómi á grundvelli óskýrra refsiheimilda en Hæstiréttur komst að því að það eitt og sér gæti ekki leitt til þess að málinu yrði vísað frá. Þá á dómurinn í dag að taka afstöðu til ákæruliðar á hendur Jóni Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna. Jóni Gerald var gefið að sök að hafa aðstoðað við bókhaldsbrot með því að búa til tilhæfulausan kreditreikning frá félagi sínu Nordica sem færður var til tekna hjá Baugi í bókhaldi fyrirtækisins. Enn fremur kemur það í hlut dómsins að kveða upp úr um hvort Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjói Baugs, hafi gerst sekur um fjárdrátt með því að hafa látið Baug greiða fyrir útgjöld á kreditkorti sem í ákæru eru sögð hafa verið persónuleg útgjöld hans. Þessum 19. og síðasta ákærulið endurákærunnar var einnig vísað frá héraðsdómi þar sem verknaðarlýsing í ákæru taldist óljós. Því var Hæstiréttur ekki sammála og vísaði ákæruliðnum aftur heim í hérað.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira