Sýknaður af ákæru um að hafa ekið á konu 3. október 2007 16:39 MYND/E.Ól
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður og fyrir að hafa vanvirt gangbrautarrétt og ekið á konu sem var á leið yfir gangbrautina þannig að hún lærbrotnaði. Atvikið átti sér stað á Selfossi í janúar síðastliðnum en umræddan dag var skyggni slæmt sökum snjóbyls. Þá var færð sömuleiðis léleg og mikil hálka. Konan sagðist hafa verið á leið yfir gangbraut þegar maðurinn hefði ekið á hana og hún dregist með bílnum nokkurn spöl. Maðurinn hélt því hins vegar fram konan hefði gengið á ská yfir götuna. Hann hefði verið á 20-25 kílómetra hraða og hefði sveigt upp á umferðareyju til þess að koma í veg fyrir slys. Dómurinn komst að því að engin ummerki hafi verið á vettvangi um að ákærði hefði ekið bifreiðinni hratt og þá virtust engin ummerki hafa sést á bifreiðinni um að konan hefði lent á henni. Þótti dómnum enn fremur sýnt að konan hefði ekki gengið yfir gangbautina og þá yrði ekki hafnað þeim framburði mannsins að konan hefði gengið utan í hægri hlið bifreiðarinnar. Taldi dómurinn því ekki sannað að maðurinn hefði ekið ógætilega eða að maðurinn hefði virt að vettugi gangbrautarrétt. Var hann því sýknaður.
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Sérsveitin handtók vopnaðan mann í Sandgerði Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira