Tólf ríkisstofnanir fara gegn reglum fjármálaráðuneytisins 3. október 2007 16:27 MYND/GVA
Tólf ríkisstofnanir reyndust með samtals 221 milljónar króna yfirdrátt á banakareikningi í lok síðasta árs samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings síðasta árs. Bent er á í skýrslunni að samkvæmt reglum fjármálaráðuneytisins sé ríkisstofnunum bannað að fjármagna rekstur sinn með yfirdrættti í banka. Þá kemur fram í skýrslunni að enn eigi fjölmargar ríkisstofnanir í erfiðleikum með að fylgja fjárlögum hvers árs. Sumar stofnanir fjármagni hallareksturinn með greiðslum úr ríkissjóði og fram kemur í skýrslunni að þær 75 stofnanir sem fóru meira en fjögur prósent fram úr fjárheimildum á árinu 2006 hafi fjármagnað hallann með 3,5 milljarða viðskiptaskuld við ríkissjóð. Höfuðstóll ríkissjóðs styrkist verulega Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir enn fremur að mikill afgangur hafi orðið á rekstri ríkissjóðs árið 2006 hafa höfuðstóll hans styrkst verulega. Bent er á að 115 milljarða króna afgangur hafi orðið rekstri ríkissjóðs árið 2005 og 82 milljarða í fyrra. Árangurinn í fyrra skýrist einkum af auknum skatttekjum og öðrum rekstrartekjum vegna þenslu í íslensku efnahagslífi. Ríkisendurskoðun segir að almennt sé umhirða ríkisstofnana um bókhaldsgögn í góðu lagi og þá hafi dregið úr áætlunum skattyfirvalda í virðisaukaskatti á undanförnum árum. Þó séu eru enn um 26,2 milljarðar króna í eftirstöðvum. Nú sé gert ráð fyrir að einungis þrjú prósent af áætlun innheimtist. „Ríkisendurskoðun leggur til að fyrirtæki sem eru sannarlega ekki í rekstri en fá áætlanir verði afmáð úr fyrirtækjaskrá, samkvæmt heimild í lögum um hlutafélög og einstaklingshlutafélög. Þá leggur stofnunin til að skattyfirvöld fái heimild til að loka virðisaukaskattsnúmerum þeirra aðila sem eru í verulegum vanskilum," segir í tilkynningu Ríkisendurskoðunar. Við endurskoðun ríkisreiknings ársins 2006 lagði Ríkisendurskoðun sérstaka áherslu á að lánardrottnar og skuldunautar ríkisins staðfestu stöðu sína gagnvart stofnunum eða fyrirtækjum ríkisins með formlegum hætti. Könnunin sýndi að í langflestum tilvikum er skráning fjárhæða í lagi. Örfáar undantekningar komu í ljós og hefur sérstaklega verið tekið á þeim málum og réttum aðilum bent á þau atriði sem þarfnast nánari skoðunar.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira