Björn opinn fyrir einkareknum fangelsum 3. október 2007 14:11
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki óeðlilegt, að þeirri spurningu sé velt fyrir sér, hvort stofna eigi með samningi til samstarfs við einkaaðila um byggingu og jafnvel rekstur fangelsa. Þessi orð lét ráðherrann falla í ávarpi sínu á Kvíabryggju í dag er kynnt var þar fjölgun á rýmum úr 14 og í 22. "Ég tel eðlilegt, að skoðað sé til hlítar, hvort ríkið eigi sjálft að standa að byggingu og rekstri hins nýja fangelsis. Á sama tíma og sú stefna hefur verið mótuð, sem verið er að hrinda í framkvæmd hér á Kvíabryggju, að föngum sé treyst meira en áður með sérstökum samningi fyrir rekstri og starfsemi fangelsisins, er ekki óeðlilegt, að þeirri spurningu sé velt fyrir sér, hvort stofna eigi með samningi til samstarfs við einkaaðila um byggingu og jafnvel rekstur fangelsa." segir Björn í ávarpi sínu. Björn ræddi í ávarpi sínu fjórþætta áætlun sem er í gangi hvað úrbætur í fangelsismálum hérlendis varðar: "Í fyrsta lagi felst í áætluninni að fjölga rýmum hér á Kvíabryggju úr 14 í 22 og auka hlutdeild fanga í rekstri fangelsisins. Í öðru lagi að endurnýja og bæta fangelsið á Akureyri en framkvæmdum þar lýkur um áramótin. Í þriðja lagi að reisa aðkomu- og heimsóknarhús á Litla Hrauni og byggja deild með sex klefum fyrir konur og sérdeild fyrir fanga, sem búa við opnari aðstæður en nú er unnt á staðnum. Í fjórða lagi verði reist nýtt fangelsi með 64 klefum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verði gæsluvarðhald, afplánun í skamman tíma, meðferðar- og sjúkradeild. Áætlunin var samþykkt árið 2005 af þáverandi ríkisstjórn. Í tilefni þessa atburðar hér í dag ræddi ég framkvæmd hennar á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og í lok þeirra umræðna staðfesti ríkisstjórnin, að áfram yrði unnið að uppbyggingu fangelsanna í landinu í samræmi við áætlunina. Hraði framkvæmda ræðst að sjálfsögðu af fjárveitingum."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira