Innlent

Stal baðvigt og öðrum búnaði fyrir samtals sex milljónir króna

Maðurinn var handtekinn með þýfi fyrir sex milljónir króna. Mynd úr safni.
Maðurinn var handtekinn með þýfi fyrir sex milljónir króna. Mynd úr safni.

Tuttugu og fimm ára gamall Reykvíkingur hefur verið ákærður fyrir að brjótast inn í hönnunar- og þróunarfyrirtækið Stima hf. aðfaranótt 7. september síðastliðinn. Hann hafði með sér þýfi að verðmæti ríflega sex milljónir króna. Hann stal meðal annars baðvigt fyrir sexþúsund og fimmhundruð krónur.

Þá stal hann þremur turntölvum að verðmæti 1350 þúsund krónur, fartölvu með hugbúnaði að verðmæti þrjár milljónir króna, hönnunar- og teikniforriti að verðmæti 1200 þúsund krónur, auk annars tölvubúnaðs og nytjahluta.

Sömu nótt tók sami maður út úr hraðbanka 50 þúsund krónur á debetkorti sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi í innbrotinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×