Hvert orð satt í Breiðavíkurbók 23. október 2007 00:01 Bárður Ragnar Jónsson segir að tímarnir eftir að Breiðavíkurmálið komst í hámæli hafi reynt mikið á hann. Fréttablaðið/Anton „
Ég er kominn með eintök og það er óneitanlega dálítið sérstakt að sjá nafn sitt í fyrsta skipti á bókatitli," segir Bárður Ragnar Jónsson en í dag kemur út bókin Breiðavíkurdrengur: Brotasaga Páls Elísonar. Eins og nafnið gefur til kynna eru þetta minningar Páls frá tíma hans á Breiðavík og einskorðast hún nánast eingöngu við dvölina á betrunarheimilinu sem stóð yfir í rúm þrjú ár. „Hún hefst í flugvél þegar Páll er á leiðinni og henni lýkur í flugvél þegar Páll er að koma heim," segir Bárður sem vill þó ekki kalla sig höfund bókarinnar heldur sé hann miklu meira skrásetjari. „Páll var búinn að skrifa megnið af þessu en við ákváðum í samstarfi við forlagið að ég myndi raða brotunum niður," útskýrir Bárður sem var sjálfur á Breiðavík á sama tíma og Páll dvaldist þar og kemur eilítið við sögu í bókinni. „Menn muna ævi sína á mismunandi hátt og og ég hugsa að ef ég hefði farið í að skrá æviminningar mínar þá væru þær öðruvísi," segir Bárður. „En það er hvert orð satt, eins og Páll segir sjálfur." Varla hefur það farið framhjá neinum að heimildarmyndin um Breiðavík, Syndir feðranna, var frumsýnd í síðustu viku og Bárður var viðstaddur forsýninguna. Hann segir að það hafi verið erfitt að horfa á myndina en hann sé ákaflega sáttur við hvernig leikstjórunum Ara Alexander og Bergsteini Björgúlfssyni tókst til. „Ég byrjaði að tala við þá í kringum árið 2004 þannig að þetta var ákveðinn hátindur," segir Bárður en bætir því síðan við að það hafi reynt ansi mikið á hann þegar málið komst í hámæli og allir vildu fá að ræða um þetta. „Þeir sem þarna voru höfðu ekki haft neinn sérstakan áhuga á því áður," segir Bárður.-fgg
Mest lesið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Fleiri fréttir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Sjá meira