Drögin gerðu ráð fyrir samningi til 10 ára 23. október 2007 05:30 REI málið hefur ekki verið til lykta leitt.
Í drögum að samningi milli Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Reykjavík Energy Invest (REI) frá 17. september var gert ráð fyrir einkarétti REI á hugviti og þjónustu OR til tíu ára en ekki tuttugu eins og niðurstaðan varð. Eftir að samningstíminn lengdist í tuttugu ár hækkaði virði hlutar Orkuveitunnar í REI um tíu milljarða. Lögmannsstofan LEX vann að samningsgerðinni með stjórnum REI og OR. Sérstaklega er tekið fram í samningsdrögunum, sem kynnt voru sem umræðuskjöl á stjórnarfundum REI, að áhætta Orkuveitunnar í þessum samningum sé fólgin í því að fyrirtækið missi stjórnina á REI, auk þess sem hann takmarkar möguleika fyrirtækisins til þess að taka þátt í verkefnum erlendis. Í drögunum frá 23. ágúst, sem voru til umræðu á stjórnarfundi REI þann sama dag, kemur fram að þau byggist á þeirri breytingu, frá því sem áður hafði verið rætt um, að setja inn fyrsta rétt (first right of refusal) REI á hugverki og þjónustu í stað einkaréttar. Björn Ársæll Pétursson, sem var stjórnarformaður REI á þessum tíma, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið fyrir viku að einkaréttur hefði ekki verið til umræðu meðan hann var í stjórn, og þaðan af síður til tuttugu ára eins og reyndin varð. Samkvæmt drögunum virðist einkaréttur REI á hugverki og þjónustu OR hafa komið til umræðu þegar Björn Ársæll var stjórnarformaður en hann lét af störfum hinn 3. september. LEX vann að samningsgerð milli REI og Orkuveitunnar á grundvelli draga sem voru rædd á stjórnarfundi REI 17. september. Þá var talað um tíu ára samning líkt og fyrr. Stjórn og forstjóri REI, Guðmundur Þóroddsson, funduðu með Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group og stjórnarformanni Geysis Green Energy (GGE), og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni FL Group, hinn 20. september, þar sem ákveðið var að láta reyna á sameiningu GGE og REI undir merkjum REI. Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, og Hannes hittust á fundi hinn 22. september og útbjuggu minnisblað sem Haukur Leósson, stjórnarformaður OR, og Bjarni kynntu fyrir Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, þáverandi borgarstjóra, daginn eftir. Þá var talað fyrir því að samningurinn skyldi vera til tuttugu ára. magnush@frettabladid.is
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Sjá meira