Innlent

Erfiðara að búa á landsbyggðinni

Léleg íslenskukunnátta er meginorsök félagslegrar einangrunar.
Léleg íslenskukunnátta er meginorsök félagslegrar einangrunar.
Innflytjendur á landsbyggðinni búa frekar við félagslega einangrun en þeir sem sest hafa að á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rauði krossinn á Norðurlandi lét gera. Niðurstöður könnunarinnar voru bornar saman við niðurstöður sambærilegrar könnunar sem gerð var á höfuðborgarsvæðinu.

Könnunin er byggð á viðtölum við innflytjendur víða á Norðurlandi. Flestir segja að léleg íslenskukunnátta sé meginorsök félagslegrar einangrunar en í minnstu byggðarlögunum er námskeiðahald stopult. Þá nefna margir að samfélagið sé lokað og erfitt að komast inn í það.- þo



Fleiri fréttir

Sjá meira


×