Nýr ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 3. september 2007 10:46
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu hefur verið ráðinn til starfa í utanríkisráðuneytinu. Við starfi ráðuneytisstjóra tekur Berglind Ásgeirsdóttir sem áður gegndi stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu. Í tilkynningu frá ríkisstjórn Íslands segir að í samræmi við stefnuyfirlýsingu hafi verið ákveðið að beita sér fyrir aukinni þátttöku Íslendinga á sviði þróunarverkefna í heilbrigðismálum á alþjóðlegum vettvangi. „Ríkisstjórnin hefur farið þess á leit við Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, að hann leiði þetta starf fyrir hönd Íslands frá og með 1. september. Davíð hefur fallist á þá beiðni og lætur um leið af starfi ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu," segir í tilkynningunni. Davíði mun gegna embætti "Special Envoy for Global Health" og mun hann sinna umbeðnum störfum á vettvangi alþjóða heilbrigðismála, með sérstaka áherslu á málefni Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO. Berglind Ásgeirsdóttir hefur undanfarið gegnt stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, en var áður einn fjögurra aðstoðarforstjóra OECD, Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar í París. Þar áður gegndi Berglind embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Berglind lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1978 og M.A. prófi í alþjóða samskiptum árið 1985. Hún hóf störf í utanríkisþjónustunni og starfaði sem sendiráðsritari og síðar sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu og sendiráðunum í Bonn og Stokkhólmi þar til hún var skipuð ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu árið 1988. Berglind gegndi störfum framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn árin 1996-1999 og tók þá aftur við starfi ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira