Perez Hilton langar til Íslands 23. ágúst 2007 10:15 Drottning fjölmiðlanna Perez Hilton tjáir sig um tónlistaráhuga sinn við Fréttablaðið.
Konungur slúðursíðanna, Perez Hilton, sem sjálfur kallar sig „The Queen of All Media“ virðist hafa gerst sérlegur verndari íslensk tónlistarlífs. Á þriðjudag mælti hann með tónlist Hafdísar Huldar Þrastardóttur á afar fjölsóttri síðu sinni, undir fyrirsögninni „Sætur lítill álfur“. Um söngkonuna skrifar hann „Hún er dásamleg“ og líkir henni við leikkonuna vinsælu Zooey Deschanel hvað varðar útlitið. Hann býður lesendum svo upp á að hlusta á lögin Tomoko og Who Loves The Sun af plötunni Dirty Paper Cup. Þegar færslan um Hafdísi Huld birtist voru ekki liðnar nema nokkrar vikur frá því að umræddur Perez birti myndband Páls Óskars við lagið Allt fyrir ástina á síðunni. Myndbandið hefur, þegar þetta er skrifað, verið skoðað yfir 140 þúsund sinnum, og óhætt að áætla að hrifning Perez hafi haft sitt að segja þar. sætur álfur Slúðurkóngurinn kallar Hafdísi Huld sætan álf á heimasíðu sinni og lýsir yfir ánægju sinni með tónlist hennar. Perez Hilton féllst á að svara nokkrum spurningum Fréttablaðsins, og heldur þannig innreið sína í íslenska fjölmiðla. Hvað varðar áhuga hans á íslensku tónlistarlífi sagðist slúðurblaðamaðurinn ekki leggja sérstaka áherslu á að fylgjast með íslenskri tónlistarsenu. „Ég fylgist með góðri tónlist. Góð tónlist er góð tónlist,“ sagði Perez einfaldlega. Hann kvaðst þó hafa áhuga á að sækja landið heim. „Ég hef ekki komið til Íslands ennþá, en það væri æðislega gaman að komast bráðlega,“ sagði hann.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira