Snýr baki við fjölskyldunni 23. ágúst 2007 09:00 Kate Moss og Pete Doherty hættu að tala saman í nokkrar vikur en hafa nú tekið saman á ný, ástfangnari en nokkru sinni.
Fjölskylda, vinir og samstarfsmenn Kate Moss eru í sárum eftir að fyrirsætan ákvað að stökkva á ný í faðm eiturlyfjafíkilsins og rugludallsins Pete Doherty. Breskir fjölmiðlar telja sig vita með vissu að Kate hefur dvalið hjá rokkaranum Pete í lúxussvítu hans á Claridge"s hótelinu í London síðustu daga og hefur sést til þeirra fyrir utan hótelið í nokkur skipti þó svo að aldrei hafi náðst mynd af þeim saman. Að sögn heimildarmanna bresku götublaðanna er lögð mikil áhersla á að þau yfirgefi og gangi inn í hótelið sitt í hvoru lagi, svo fjölmiðlar fái ekki það myndefni sem þeir þrái hvað mest. Ekki eru liðnir nema tveir dagar síðan Pete var handtekinn og síðan sleppt aftur fyrir meint fíkniefnabrot og þar með rof á skilorði, en vegna tæknilegra mistaka lögreglu og dómsyfirvalda þar ytra var ekki hægt að ákæra söngvarann. Mun fjölskylda hinnar 33 ára gömlu Kate vera með böggum hildar vegna endurfunda hennar og Pete, en ekki er langt síðan stormasömu sambandi þeirra lauk formlega. Kate virðist hins vegar ekki geta sleppt takinu af Pete sínum, jafnvel þótt öllum sé kunnugt um þau slæmu áhrif sem hann hefur á heilsu og ímynd fyrirsætunnar. Jafnvel er talið að helstu samstarfsaðilar Kate í fata- og snyrtivörubransanum séu búnir að missa þolinmæðina á stúlkunni og muni slíta öllu samstarfi nái hún sér ekki upp úr þeirri vitleysu sem þeir vilja meina að samband hennar við Pete sé. Daily Mail hefur eftir fjölskylduvini að Linda, móðir Kate, sé algjörlega miður sín. „Þau höfðu ekki talast saman í margar vikur og Linda var í skýjunum. Síðan fékk hún að heyra það frá Kate að þessi aðskilnaður hefði aðeins gert ást hennar til Pete sterkari. Linda brotnaði saman við að heyra það,“ segir vinurinn.
Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Fleiri fréttir Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Sjá meira