Fljúgandi fundaherbergi í höfuðstöðvum Kaupþings 18. ágúst 2007 02:15 Eins og sjá má á þessari mynd standa framkvæmdir að fundaherbergjunum enn yfir en vel er hægt að átta sig á því hvernig glerkassinn fljúgandi mun koma til með að líta út. Járnstútarnir sem halda herbergjunum uppi eru mjög grannir, en gríðarlega sterkir. MYND/Hörður „
Það er í anda bankans að fara ótroðnar slóðir og þetta á eftir að gera umhverfið í nýja húsinu skemmtilegra," segir Svali Björgvinsson, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Kaupþings. Farið er að sjá undir lok framkvæmdanna við viðbyggingu höfuðstöðva bankans í Borgartúni og mun hluti nýju byggingarinnar verða tekinn í notkun af starfsmönnum um helgina. Óhætt er að fullyrða að nýja byggingin sé afar glæsileg á að líta og þá ekki síður innandyra. Gegnsæ fundarherbergi sem virðast hanga niður úr lofti byggingarinnar vekja þar sérstaka athygli en ekki er vitað til þess að þau eigi sér hliðstæðu hér á landi. Svali Björgvinsson segir nýju fundarherbergin setja skemmtilegan svip á nýbyggingu Kaupþings í Borgartúni. „Við köllum þetta fljúgandi fundarherbergin," segir Svali en um er að ræða alls sex fundarherbergi, 10-15 fermetrar á stærð, sem hengd eru upp í loft með þunnum járnstútum. Veggir herbergjanna eru úr gleri en af eðlilegum ástæðum er gólfflöturinn það ekki. Fundarherbergin líta því út eins og stór glerkassi sem nánast svífur í lausu lofti, en 40 sentímetra langar brýr tengja þau við skrifstofuganginn. „Hluti af hugsuninni á bak við herbergin er að nýta plássið sem best en við vildum einnig prófa eitthvað sem enginn annar hefur gert," segir Svali og bætir við að fljúgandi fundarherbergin setji sannarlega svip sinn á höfuðstöðvarnar. „Hvað burðarþol varðar er þetta mikið afrek og hönnunin er einstök. Við hlökkum mikið til að taka herbergin í notkun," segir Svali.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira