Afar krefjandi ævintýri 31. júlí 2007 01:45 Emil Grímsson, Hjalti Hjaltason og Haraldur Pétursson aðstoðuðu sjónvarpsstjörnurnar úr Top Gear við að keyra á segulpólinn.
Þrír starfsmenn Arctic Truck tókust á hendur svaðilför ásamt sjónvarpsmönnunum frægu úr bílaþættinum Top Gear, sem sýndur er á BBC við miklar vinsældir. Þeir Emil Grímsson, framkvæmdastjóri Arctic Trucks, Hjalti Hjaltason og Haraldur Pétursson lögðu sjónvarpsmönnunum lið við að komast á svokallaðan segulpól á norðurheimsskautinu. „Þetta var heilmikið ævintýri," sagði Emil í samtali við Fréttablaðið, en hann hafði þá nýlokið við að horfa á þáttinn, sem var sýndur á BBC síðastliðinn miðvikudag. Í Top Gear takast þáttastjórnendur iðulega á við ýmis konar áskoranir. Að þessu sinni kepptu þeir Jeremy Clarkson og James May, sem óku Toyota Hilux-bíl frá Arctic Trucks, við Richard Hammond, sem ók hundasleða, um hverjir yrðu fyrstir til að komast á segulpólinn. „Það hefur verið staðið fyrir gönguferðum frá Resolute í Norður-Kanada á segulpólinn í mörg ár, en það hefur enginn farið á bíl svo við vitum til. Innfæddum í Resolute fannst þetta fáránleg hugmynd," sagði Emil og hló við. Top Gear hafði samband við Toyota, sem bað svo Arctic Trucks að útvega farartæki í svaðilförina. „Við höfum þvælst um Grænland þvert og endilangt, svo við höfum dálitla reynslu af þessu," sagði Emil. Svaðilförin átti sér stað í lok apríl og byrjun maí, en henni hafði þá verið frestað um mánuð. „Veðurfræðingurinn í Resolute sagði að við værum orðnir of seinir, að ísinn væri orðinn svo þunnur að við gætum dottið í gegn. Þá varð fólk svolítið stressað," sagði Emil yfirvegaður. Upphaflega átti hann ekki að vera með í för á pólinn, en vegna óróans út af þykkt íssins, og sökum þess að hann var einn af fáum sem gat keyrt í snjónum, varð úr að hann fylgdi ferðalöngum. „Ég samþykkti að lokum að fara á undan á sleða, með bor til að mæla þykkt íssins. Svona til að friða mannskapinn," útskýrði Emil. Þeir Jeremy Clarkson, James May og Richard Hammond voru miklir atvinnumenn, að sögn Emils, og tvímælalaust jafn skemmtilegir og í þáttunum. Hann sér ekki eftir því, þó að ferðalagið hafi tekið sinn toll. „Þátturinn sýnir ekki alveg hversu hrikalega þreyttir menn voru orðnir. Þetta voru mikil átök, og fólk vantaði hreinlega svefn. Það fóru allt að fjórir tímar, bæði kvölds og morgna, í að koma upp búðum og bræða upp vatn til að drekka og elda mat. Það er bara heill vinnudagur. Svo þarf að mynda og keyra inn á milli," sagði hann. Ferðlaginu fylgdu aðrir kvillar, því Emil segist hafa gleymt öllu öðru á meðan á því stóð. „Eftir viku fór það svo aðeins að rifjast upp fyrir mér hvaða ábyrgð maður hefði svona í lífinu," sagði hann og hló við. Emil segir samfylgdina við Top Gear-menn hafa verið afar ánægjulega. „Þeir komu mér eiginlega á óvart, þeir voru allir svo miklir atvinnumenn. Þeir voru líka ótrúlega duglegir að fara út að mynda, sem er nú ekki alltaf mjög freistandi í þessum kulda," sagði Emil og hló. „Það var mjög gaman að vinna með þeim, þeir eru tvímælalaust alveg jafn skemmtilegir og þeir eru í þáttunum," bætti hann við. Ekki er ljóst hvenær umræddur Top Gear-þáttur verður sýndur hér á landi, en Skjár einn hefur haft þáttaraðirnar til sýningar. „Við höfum hug á að vera með einhvers konar frumsýningu á þættinum í samvinnu við Skjá einn og Toyota hérna heima. En það er ekki komin nein dagsetning á það ennþá," sagði Emil, sæll með svaðilförina.
Mest lesið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Melanie Watson er látin Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Lífið Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Lífið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Lífið Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Fleiri fréttir Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Spurt var um fólkið sem var grátandi, ælandi og öskrandi Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Melanie Watson er látin Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein