Beyoncé dettur kylliflöt 27. júlí 2007 05:45 Hér sést hvernig Beyoncé sveiflar hárinu á tónleikum sínum áður en hún gengur niður tröppurnar. Þó er ekki um að ræða sömu tónleika og hún datt á.
Söngkonan Beyoncé Knowles varð fyrir því óláni að hrynja niður stiga á tónleikum sínum í Florida fyrr í vikunni. Hún virðist þó hafa sloppið með skrekkinn því hún stóð snöggt á fætur og hélt áfram að syngja eins og ekkert hefði í skorist. Sumir áhorfenda voru meira að segja á því að söngkonan hefði ekki misst úr eitt einasta orð. Beyoncé er nú á tónleikaferð um Bandaríkin og hefur lagt það í vana sinn að sveifla hárinu ofsafengið meðan á flutningi stendur. Hún hafði rétt nýlokið við góða sveiflu þegar hún tók til við að ganga niður tröppur á sviðinu í síðum, rauðum silkifrakka. Ekki vildi betur til en svo að hún festi hælinn í frakkanum og féll niður einar tólf tröppur. Beyoncé missti hljóðnemann en greip hann hið snarasta eftir fallið og hélt áfram að syngja. Beyoncé framan við tröppurnar sem hún datt niður í vikunni. Fallið hefur ekki verið þægilegt en hún stóð upp eins og ekkert hefði í skorist. Áður en hún hóf flutning á næsta lagi sínu bað hún áhorfendur náðarsamlegast að setja ekki myndir eða myndbönd af atvikinu á netið. Henni varð ekki að ósk sinni því myndbandið hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Það er meðal annars að finna í nokkrum útgáfum á vefsíðunni YouTube.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Grafinn í sand í sólarhring Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira