Fá hjálp frá framleiðanda Bráðavaktarinnar 23. júlí 2007 02:45 Carol Flint, sem hefur meðal annars skrifað og framleitt þætti í þáttaröðinni Bráðavaktinni, mun miðla af reynslu sinni til íslensks sjónvarpsfólks.
Nokkrar stjörnur úr bandaríska sjónvarpsgeiranum eru væntanlegar hingað til lands í ágúst, þar sem þær munu miðla af reynslu sinni til íslensks sjónvarpsfólks á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins MediaXchange. Ráðstefnan ber heitið „Outside the Box", en þar mun íslensku sjónvarpsfólki gefast tækifæri á að fá innsýn í framleiðsluferli leikins sjónvarpsefnis í Bandaríkjunum. texti fylgir Björn Þórir Sigurðsson, dagskrárstjóri Skjás eins, hefur verið fyrirtækinu innan handar við skipulagningu, og hann segir ráðstefnuna frábært tækifæri fyrir íslenskt sjónvarpsfólk. „Kvikmyndasjóður Íslands er að auka fjármagn til framleiðslu sjónvarpsefnis, svo þetta er tilvalið tækifæri til að koma með smá ferskleika inn í þetta umhverfi," sagði hann. „Við eigum mikið af fagfólki sem vinnur við sjónvarp, en höfum kannski ekki haft tækifæri til að þjálfa okkur mikið," bætti hann við Hingað til lands kemur til að mynda forstjóri Scott Free Productions, David Zucker, og rithöfundurinn Carol Flint, sem hefur skrifað og framleitt þætti á borð við Bráðavaktina, West Wing og The Unit. texti fylgir Ráðstefnan einbeitir sér að framleiðsluferli leikins sjónvarpsefnis. „Það er kannski einna helst það sem hefur vantað hjá okkur. En með auknu fjármagni opnast nýir möguleikar, og ég veit að á öllum sjónvarpsstöðvunum er áhugi á að sinna þessu," sagði Björn. Til marks um það hafa sjónvarpsstöðvarnar þrjár, Pegasus, Saga film og Kvikmyndamiðstöðin, lagst á eitt til að ráðstefnan verði að veruleika. Björn segir Bandaríkjamenn bera af í framleiðslu slíks sjónvarpsefnis. „Hiklaust. Og Danir hafa til dæmis náð góðum árangri með því að stúdera þetta. Þeir hafa fengið þrenn alþjóðleg Emmy-verðlaun á síðustu árum. Sven Clausen, einn aðalframleiðandi þeirra, hefur til dæmis unnið með þessu fyrirtæki. Hann framleiddi Örninn, Rejseholdet og Krónikuna svo eitthvað sé nefnt. Hann er nýbúinn að koma hingað, og nú förum við bara beint í kúna," sagði hann sposkur. texti fylgir Ráðstefnan er opin öllum sem hafa áhuga á framleiðslu leikins sjónvarpsefnis. „Þetta er hugsað fyrir fagfólk, en þeir sem hafa áhuga á að snúa sér að skrifum á sjónvarpsefni, eru í fjölmiðlafræði eða ganga með einhverja hugmynd í maganum, eru velkomnir líka," sagði Björn. Ráðstefnan stendur yfir 22. til 24. ágúst.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira