Lífið

Skemmtu sér um borð í snekkju Romans Abramovich

Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson fóru ásamt unnustum sínum í heimsókn til góðvinar síns Eiðs Smára Guðjohnsen og eiginkonu hans Ragnhildar Sveinsdóttur á dögunum. Knattspyrnukappinn er nú að nýta síðustu dagana í sumarfríinu áður en kallað verður til æfinga hjá stórliði Barcelona og naut lífsins með góðvinum sínum.

Hersingin staldraði stutt við í höfuðborg Katalóníu og hélt í siglingu um höfin blá á glæsilegri snekkju. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var ekki um að ræða neitt venjulegt bátskrifli heldur snekkja í eigu sjálfs Romans Abramovich, rússneska auðjöfursins og fyrrum yfirmanns Eiðs hjá Chelsea. Nutu vinirnir lífsins lystisemda um borð en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var allt starfsfólk snekkjunnar um borð og þjónustaði Íslendingana eftir bestu getu. Ekki fékkst gefið upp hvert ferðinni var nákvæmlega haldið en þeir Auðunn og Sverrir komu til landsins um síðustu helgi.

„Ég vil ekkert tjá mig um þetta mál. Núna er ég bara í langþráðu sumarfríi og er að æfa sveifluna á golfvellinum," segir Auðunn Blöndal, aðspurður um ferðina. Í sama streng tók Sverrir Þór Sverrison, hann vildi ekkert láta hafa eftir sér í samtali við blaðið en grínarinn góðkunni undirbýr nú barnaefni fyrir Stöð 2 af fullum krafti ásamt Vilhelm Antoni Jónssyni, Villa Naglbít.

Eiður Smári og Ragnhildur hafa þó greinilega skipulagt hið stutta sumarfrí atvinnumannsins vel en þau dvöldu hér á landi um tíma og héldu meðal annars óvænt upp á þrítugsafmæli Ragnheiðar með pompi og prakt. Nú stendur hins vegar til að stjörnurnar þyrpist á Camp Nou til æfinga þar sem Eiður berst um byrjunarliðssæti í Barcelona við bestu knattspyrnukappa heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.